Siglingar út í Grímsey
Best geymda
leyndarmálið
á Stöndum
Grímsey í Steingrímsfirði er stærsta eyjan á Ströndum og sannkölluð náttúruperla þar sem kyrrð, fuglalíf og hrífandi landslag mætast. Eyjan er ein stærsta lundabyggð landsins, en áætlað er að um 25–30 þúsund pör af lundum verpi í eyjunni á hverju sumri.
Gestir geta notið fersks sjávarlofts og óspilltrar náttúru sem gerir heimsóknina að ógleymanlegri upplifun. Grímsey er því kjörinn áfangastaður fyrir þá sem vilja upplifa rólega en ævintýralega ferð í hjarta Strandanna.
Á vegum Malarhorns eru farnar reglubundnar siglingar til Grímseyjar yfir sumartímann, þar sem leiðsögumaður er með í för og segir frá náttúru, sögu og fuglalífi svæðisins. Gestir stíga um borð í bátinn Sundhana ST3, þar sem notaleg og eftirminnileg sigling út í eyjuna hefst.
Siglingarnar hefjast 15. júní og standa fram í miðjan ágúst, eða eins lengi og veður og aðstæður leyfa.
Stígðu um borð í
Sundhana ST 3
Lagt er af stað frá bryggjunni á Drangsnes og eru tvær ferðir í boði á dag:
Morgunferð kl. 09:00
Hádegisferð kl. 13:30
Siglingin tekur um 3 klukkustundir, þar sem siglt er í kringum eyjuna áður en komið er að landi.
Við komuna fá gestir 1–2 klukkustundir í Grímsey, til að skoða sig um, ganga um eyjuna, fara upp að vita og njóta stór
