Velkomin
á malarhorn

Þar sem hafið, fjöllin og náttúran skapa einstaka upplifun.

Staður fyrir þig

Á Malarhorni færðu meira en bara gistingu, þú færð rólega dvöl í einstöku umhverfi, persónulega þjónustu og aðgang að náttúrulífi sem fæst varla annars staðar. Gestir okkar njóta þess að vera í notalegu sjávarþorpi með fallegu útsýni, stutt í allar helstu náttúruperlur og þægilegan aðbúnað sem gerir upplifunina bæði afslappaða og eftirminnilega.

Njóttu

Upplifðu heitu pottana á Drangsnesi

Heitu pottarnir á Drangsnesi eru einn af helstu áfangastöðum gestum á Ströndum, og ekki að ástæðulausu. Þeir sitja rétt við fjöruna, með óhindrað útsýni yfir hafið og eyjuna Grímsey. Hér getur þú notið kyrrðarinnar, mýktar vatnsins og ferska sjávarloftsins sem einkennir strandlífið. Hvort sem þú ferð í pottana í sólarupprás, í miðjum degi eða í ljúfri kvöldkyrrðinni, þá er upplifunin alltaf einstök. Vatnið er alltaf hæfilega heitt, og róandi hljóð sjávarins bætir við afslöppunina. Pottarnir eru í göngufæri frá Malarhorni og eru frábær viðbót við dvöl, fullkomnir eftir dag í göngu, siglingu, náttúruskoðun eða bara þegar þú vilt njóta þess að gera ekki neitt.

Ski courses 2026 for Malarhorn Guesthouse

Cross-country skiing courses are being offered in the area on the following days in January.

January 23-25 and 30- February 1 2026.

Malarhorn Guesthouse is offering participants the following prices:

  • 20,000 ISK per night for a double room with a private bathroom, breakfast included
  • 16,000 ISK per night for a double room with shared bathroom, breakfast included.

We will offer dinner if there is interest, but it is necessary to book it 4 days in advance.

Please contact us via email or phone for more info and to book it.

Email:  [email protected]
Phone: +354 4192801