Malarhorn

Velkomin á Strandir!

Gestgjafar ykkar, Ásbjörn og Valgerður, tóku sig til og hófu uppbyggingu á ferðaþjónustu á Drangsnesi veturinn 2007. Þau opnuðu Gistiheimilið Malarhorn þá um vorið en létu ekki þar við sitja og á Bryggjuhátíð sama ár opnuðu þau Malarkaffi. Árið eftir reistu þau svo hús með tíu herbergjum. Árið 2013 bættu þau enn fremur við einu húsi til viðbótar, með íbúðum og herbergjum og nú eru 48 rúm í boði. Að auki gera þau út bátinn Sundhana á sjóstöng og halda uppi áætlunarferðum í Grímsey.

Malarhorn
Gisting

Malarhorn býður upp á fjölbreytta gistimöguleika í herbergjum með og án baðherbergis. Einnig eru íbúðir með séreldhúsi og stofu í boði fyrir stærri hópa. Við bjóðum ykkur velkomin. 

Veitingastaðurinn
Malarkaffi

Malarkaffi veitingastaður býður upp á morgunverðarhlaðborð, hádegis-og kvöldmat frá 1. maí – 30. september ár hvert. Veitingastaðurinn er tilvalinn fyrir hópa jafnt sem einstaklinga sem vilja gera sér dagamun. Malarkaffi býður upp á ferskan fisk flakaðan á staðnum.

Bátsferðir

Boðið er upp á náttúruskoðunarferðir og reglulegar ferðir út í Grímsey í Steingrímsfirði með leiðsögumanni.

Að vegna óviðráðanlegra aðstæðna er siglingum útí Grímsey lokið þetta árið